hann gengur inní herbergi mitt þar sem ég ligg í rúmmi mínu,
hann grípur um handlegg minn og öskrar á mig,
hann segir að ég sé heimsk og ljót og að allir hati mig,
síðan sé ég hönd hans nálgast andlit mitt aftur og aftur,
þar til ég finn ekki fyrir því.

ég þori ekki í skólan,
öll marinn og meidd,
þau spyrja hvað gerðist?
ég segi ekki neitt.

ég kem heim úr skólanum bíður hann eftir mér,
hann segir að ég eigi að fara inn til mín,
ég geri það og stuttu seinna kemur hann inn,
hann öskrar og blótar og hótar mér öllu íllu,
hann slær mig þar sem ég sit og græt mig sára,
hann segir að þetta sé gott fyrir mig,
hann segir að það eigi að berja vitið í börn,
mamma kemur inn og biður hann að hætta í síðasta sinn,
hann snýr sér og lemur hana,
hún dettur niður og hreyfir sig ekki,
það lekur blóð á gólfið frá hausnum hennar,
ég græt meira,
hann lemur mig meira,
þar til ég sé ekki meir,
þar til hjartað og lungun hætta að hamast,
hann horfir ánægður á það sem hann hefur gert,

nú er hann með son sem hann segist líka elska……..