Stæðilegt fjallið
er baðað geislum
sólar á niðurleið,
sem leikur sér
með litina
eins og ég,
já, við erum
lúmskt líkar
Sunna og ég.

Alveg eins
og manneskjan,
þú ert lík Mána,
svo dularfull og feimin
en samt svo augljós.

Andstæður sem
samt eru eins,
líkar á svo margan
hátt, eða ekki,
kannski skiptir það
ekki máli,
segðu mér bara hvað
þú ert að hugsa.