Í myrkri hafsins ég barðist um
eitthvað mig elti í skuggunum
ég dey

Öldurnar lofuðu engu mildu
veltu mér eins og drekkja mér vildu
ég dey

Nístingskuldinn beit í kinnar
og þrýsti að mér, innar og innar
ég dey

Haglélið dundi á mínum hvörmum
flekkóttir marblettir myndast á örmum
ég dey

Stóreflis skip stefndi mig á
en ég rétt náði að sveigja framhjá
ég dey

Upp á land ég loksins náði
vildi að hugur minn minningarnar máði
ég lifi

Eftir: Batdragonfly