Eldur hinna réttlátu brennur. Brennur og brennur.
Brennir allt óréttlátt sem á vegi hans verður.
Ekkert kemst undan. Ekkert. Ekkert.
Allt brennur. Brennur. Brennur.

Þeir hefðu ekki átt að svindla af mér launin.
Hefðu ekki átt að gera það svona óprúttið. Ekki svona
glottandi. Hefðu ekki átt að hlæja. Grínast með það. Hugsa
svona. Helvítin af þeim.

Eldur hinna réttlátu brennur. Brennur og brennur.
Brennir allt óréttlátt sem á vegi hans verður.
Ekkert kemst undan. Ekkert. Ekkert.
Allt brennur. Brennur. Brennur.