Ég skar eftir endlöngu. Hljóðið sem heyrðist var ekki ósvipað
því og heyrist þegar maður sker hrátt beikon..eða plastpoka á
trébretti. Vanabindandi….magnað….hreint.

Ef ég næði góðum skurði ætti hann kannski möguleika. Hann
er ennþá ungur, hann jafnar sig. Þetta er kynferðisleg
hugsun. Brenglun á háu stigi. “Brenglun”, “brenglun”…orðið
hefur svo skrítna merkingu. Enga merkingu. Virkar á mig
svipað og trompet þegar það bergmálar í hausnum. Blóð.
Panik. Hann á ennþá möguleika. Hann er svo fallegur. Svo
rosalega fallegur. Líkur mömmu sinni.

Helvítis hóran. Henni var nær.

Svo fallegur og góður. Var alltaf að koma með blóm til mín á
spítalann. Falleg blóm. Svo rosalega falleg blóm frá fallegum
strák. Sem er svo líkur mér.