Við sátum tvö saman hjúfrandi…
ég kveð þig með tárum brátt…
mundu mig ávallt á erfiðum tímum…
meðal englanna tekinn í sátt..

fögur nóttin beið og beið…
uns dagur var runninn á ný…
ég kvaddi heiminn í þínum örmum…
þú ávallt varst kær og hlý…

mundu þann tíma við glöð og sæl…
störðum himininn á…
ég er þarna uppi ástin mín…
ég var tekinn burt þér frá…

þitt fallega bros ég ávallt man…
er þú hvíldir þig mér hjá…
saman við verðum brátt á ný…
himnanna sænginni á…