Vaktu með mér
og sjáðu hvernig rökkrið
yfirtekur fagra sumarnóttina,
friðsælt líf, fallegur draumur.
Lofaðu mér öllu fögru
og ég
skal gera slíkt hið sama,
ef þú aðeins trúir
mér og treystir því ég
treysti þér.
Vaknaði upp í morgun og teygði
mig til hliðar en þú varst
ekki hjá mér.

Hitti þig og strax ertu
í drauma mína kominn, velkominn,
lífgar upp á þá
en vonbrigðin, þegar ég kem
út í vetrarkuldann á morgnanna,
eru ólýsanleg.
Utan við mig í skólanum,
dagurinn líður hjá
í móðu,
en hvað af því sem gerist á daginn
mun ég muna að degi loknum?
Þú einn ert þess virði að muna.