Endursendig á Hæhæ. Þetta er sama ljóð og ég sendi hérna fyrir ekki svo löngu en það voru ekki allir sáttir með uppsetninguna á því þannig að ég breytti henni örlítið, endilega segið ykkar skoðun á þessu ljóði. Takk takk ;)

Tilfinningaflétta.

Rythmi hjartans, rythmi hugans,
rythmi lífsins, ástarbrunans.

Vængbrotnir englar ástarinnar
er þjást af hlýhugaskorti,
í eldgosi tilfinninga minna
þetta ég orti.
Get ekki gleymt, get ekki grafið
í þessari persónu þið mig hafið.
Sjóðheitt yfirborðið,
skjálfandi undir niðri.
Á öxlum mér ber ég mikla byrgði,
byrgði sem ég ein veit.
Á örskotsstundu á þig ég leit.

Innantómt bergmálið í hjarta mínu,
í lífinu ég geng með stóra grímu.
Listaverk líkama og huga,
allir mig reyna að buga.
Fráhrindandi persónuleikar nútímans
svikular manneskjur,
detta í trance,
detta í dans samhljómra sála,
hugsunum mínum vil ég kála.
holdið er hrjúft, sárið djúpt.
Í hjarta mitt skarstu
fyrir mér varstu
framtíðar vinur
hvað sem á dynur
mér þykir svo vænt um þig,
þú hugsar svo vel um mig.

Hlýleiki um æðar mér rennur,
ástarbruninn nú út brennur.

Jenný =)
Ég er ég og þú ert þú svo ekki halda að þú þekkir mig!