Ligg ein í myrkrinu
hlusta á þögnina,
hljóðin í þögninni
hljóðin í höfðinu á mér.

Myrkrið er kalt og ógnandi
því ég hef engan
til þess að deila því með,
hvar ertu ?

Draumarnir svo margslungnir
og skrítnir að ég
vil ekki sofna og ligg
þess vegna og hlusta.

Baugarnir dökkir
augnaráðið tómt
en það sérðu ekki
því þú ert blindur.