Eins og glöggir sjá er þetta inspirerað af ljóðlínu Tómasar Guðmundssonar, fær hann hér með hinar bestu þakkir:)



Fegurð! Nú skalt þú óma
Í eyru mér, ég verð þér trú
Augun mín, láttu þau ljóma
Allt sem þau sjá það ert þú
Og augun mín, þau skutu gneistum
Losta, vilja og þrá
En eyrun vildu helst gleyma
Því sem þú sagðir þá

Ég hamingjuna vildi góma
Hún vildi mig ekki sú
Ég leitaði blárra blóma
En allt sem ég fann varst þú