Inn segir hliðið og maðurinn í því
gervilöggur og harðhattar á víxl
eins og maurar.
Inn í “himnaríki” kemst ég
með fulla vasana af aur
hvítmálaðir rúllustigar
og gólf
Inn segir búð við hlið mér
gínan brosir til mín
og tælir
Inn kemst þetta risavaxna reðurtákn
sem tekur Reykjavík í rassgatið
með “betra verð, betri kaup” og Hagkaupsskilti á kónginum
og nauðgar.


:)

Smá ádeila, frekar fyndið þar sem ég vinn í þessari nýju verslunarmiðstöð.
—–