Skuggi læðist Liggur í leyni bakvið stein
Lævís teygja lipurra lima
Augun loga, eyrun næmu
Eðli sínu afturkvæmu
Leynir djúpt í lífsins kima
Læðir efa í mín bein

Hljóðlaus ráfar, hleypur rennur
Rými gegnum, ofar tíma
Eirðarleysi felur slyng
Ávallt streymir lífið hring
Engin vinnst við köttinn glíma
Hvæsir, glottir…skína tennur

Veit að þolinmæði vinnur
Skuggaköttur alla finnu