…rökkrið sveipar um sig skýjahulunni og leggst til svefns
…kúrir í skjóli undan skerandi ópum og blindandi birtunni
…skærguli eldhnötturinn á heiðbláum himninum rís hærra
…og speglar sig í vatni fljótanna tærra…

…sálirnar ferðast um saklausar - nautheimskar - grunlausar
…blindar þær sjá ekki dauðann - sorgina - hætturnar
…kyssandi hvort annað - með tár í augum þær hlæja dátt
…en um Satan frá helvíti - þær vita fátt…

…ég stend á hæðinni - grátandi - snöktandi - starandi
…á alla þessa feigu - dansandi - syngjandi - hlæjandi
…senn mun ég rísa og enda þessa skemmtan snöggt
…þá sálirnar vitlausar vita það glöggt…

…ég er djöfull að starfi
…og hata þá iðju
…ég fel mig í hvarfi
…í jarðarmiðju…

…börnin leika sér lítil - svo saklaus og undurfríð
…dýrin hlaupa um gresjurnar - svo fögur og tignarleg
…en í rökkrinu ríki ég og skapa öll þessi stríð
…hatrið í heiminum dafnar meðan andann ég dreg…

…en ég tek mín lyf og hætti að stara
…ég geng í átt að þessum skara
…sálir þessar í hel munu fara
…og hatrið hér mun áfram vara…

…ég drep alla þá er á Drottinn trúa
…myrði alla gleði - sem í sálunum búa
…dreifi sorginni í fólksins aragrúa
…tárunum mun ég um nasir þeirra núa…

…ég er djöfull að starfi
…og hata þá iðju
…ég fel mig í hvarfi
…í jarðarmiðju…



…rauðbleika sólkringlan á dökkum himninum hnígur
…dagurinn lítur í grasið og nóttin hún nálgast
…líkin liggja köld á strætum - blóðið lekur sem fljót
…tunglið speglar sig í vökvanum - ofan veröld sem er ljót…

…heimsendir kominn og nú ég sit þreyttur
…halinn og hornin á líkama mínum stækka
…sýktur og leiður með eftirsjá - sveittur
…og gleðiský mín á himninum lækka…

…enginn er alslæmur - hvorki ég né þú
…og allir hafa sinn djöful að draga
…hvort sem góð eða slæm - þín er trú
…er allt þetta - eina og sama saga…

…ég er djöfull að starfi
…og hata þá iðju
…ég fel mig í hvarfi
…í jarðarmiðju…


-pardus-

P.S… ég samdi þetta í dag. Mér fannst stigin mín vera orðin dáldið kúl (999 stig) sem eru að sjálfsögðu 666 á hvolfi. Ég veit svo sem að þetta er ekkert svakalega merkilegt… fannst það bara sniðugt ;)
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.