Hann dembist þessi dagur
yfir mig
í takt við tónlistina
frá slaghamri fyrir utan.

Augnlokin vilja ekki upp
gangverkið í þeim grútskítugt
og gerir lítið gagn
svona snemma á morgnanna.

Það er engin sól
og þó,
kannski kíkir hún
í gegnum bómulinn
og býður önnum köfnu fólkinu
góðan dag.
—–