…sýktur og brenndur eftir varganna nag
…tærist og hrapa hvern einasta dag
…í myrkrinu horfir þú á mig og hlærð
…augað á himnum - þú hatar mig særð
…þú varst allt hér
…allt fyrir mér…

…þú lýstir mér fögur í rökkursins dimmu
…og barst mig burt eftir bardagans rimmu
…nú ligg ég eftir á vígvelli dofinn
…sálin hún grætur - köld og klofin
…þú varst allt hér
…allt fyrir mér…

…en augað á himnum hverfur mér sýnum
…myrkrið tekur við í huga mínum
…þessi stund milli tunglskins og birtu
…þegar djöflarnir sál mína hirtu
…þú varst allt hér
…allt fyrir mér…

…dagur rís og sólin hún brennir
…reynslan hún mig særir og kennir
…ég aldrei mun aftur á tunglið líta
…vera sterkur og á jaxlinn bíta
…þú ert ekki hér
…ekkert fyrir mér…
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.