Elsku litli drengurinn minn,
hvar er verndarengillinn þinn?

Hvar er ég þegar þú grætur?
hver huggar þig um nætur?
Hver kyssir á öll litlu sárin
og strýkur burt söltu tárin?

Er heimurinn góður við þig
hugsar þú stundum um mig?


Ef eitt augnablik, eina stund
fengi ég þig, á minn fund,
Fullvissa mig um velferð þína
róa móðursálina mína.

Elsku litli drengurinn minn.
Hvar er verndarengillinn þinn.