Blóð lekur í myrkri
af ókunnugum höndum.
Líkið fellur niður
á jörðina hrátt.

Maður hleypur burtu,
hverfur inní myrkrið.
Líkið liggur eftir
á jörðini autt.

Tár falla í kirkju,
gnístir í tönnum.
Líkið sekkur niður
í jörðina djúpt.

Maður gengur laus
með bros á vörum.
Líkið grætur niðri
í jörðini, ósátt.