Þursar, nornir, dísir dauða
spinna nóttu
dreyra rauða.
Hver er að spinna
hvaðan kemur?
þrjá í einni, ein í þremur
Hver í spuna rokkinn lemur?
Sitja saman, berja stokka
ata blóði
spuna rokka.
Hvín í eirum feigra manna
hvísla milli bitinna tanna:
manna lífi
engu unni
nornir þrjár hjá Urðarbrunni.
Hver er að spinna
hvaðan kemur?
hver í spuna stokkinn lemur.
Þrjár í einni, ein í þermur
spinna andans þrá í duld
vita örlög öðrum fremur:
Urður, Verðandi og Skuld.