Ég sé mig speglast í þér.
Ég hræðist það sem ég sé,
ég óttast að myrkrið sé það eina
sem ég læt þér í té.

Ég vona að augu þín verði
aldrei af hatri myrk.
Ég vona að þú hafir hlotið
nægan sálarstyrk.

Ég vona að þú finnir aldrei
svölun í blæðandi sárum
Ég vona að andlit þitt verði aldrei
þakið beiskum tárum.

Ég vona að þú kynnist ekki
þessarri myrku hlið.
Ég vona að þú finnir
í lífinu ró og frið.

Ég vona að þú verðir
betri maður en ég.
Að ekkert leiði þig
niður minn veg.
Gríptu karfann!