Síðskeggjaðir mussukommar, fjaðraskrýddir leðurhommar,
þykjustunni femínistar, furðulegir mansonistar,
þröngsjáandi bókstafsklerkar, leiðinlegar nöldurkverkar,
hlandþambandi ræsisrónar, göndulblautir skápadónar,
ískurhljóma táningspeyjar, síjarmandi gelgjumeyjar
afneitandi trúleysingar, allir aðrir vitleysingar og…

…aumingjar! Þið heila ykkar aldrei notið
í höfði ykkar kál sem orðið er rotið
þið fingrunum upp í báðar nasir potið
og klórið ykkur í kollinum á meðan…

…þið hugsið um tilsvörin
til að skrifa hér að neðan.



Pardus ;)
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.