Þessi tilfinning,
Hraparlega tilfinning,
Ást? Hvernig þá?
Hvernig get ég elskað?
Hver elskar mig?

Í tímalausum líkama,
Skipti sköpun þess að lifa,
En lifa ekki lífinu sjálfu,
Heldur lifa í ótta,
Ótta við lífið.
Lifa án ástar,
En það er ekki möguleiki,
Engin tromp á hendi.

Þessi tilfinning,
Hraparlega tilfinning,
Skerst í hjarta mitt,
Já, ég átta mig á því,
Ég elska þig og dái,
Ég vil elska þig
Þó í þig ekki nái.

Ég vil halda hendi þína í,
Kreista, strjúka.
Ég vil kyssa á þinn munn.
Ég vil elska þig.
Svo ég spyr,
Má ég elska þig?

—–


Ég veit ekki hvort,
Ég ætti að trúa,
Eða treysta?
Hvort ég geri veit ég ei,
Því ég er hrædd,
Hrædd við höfnun,
Hrædd við sársauka,
Hjarta mínu í.

Tíminn læknar öll sár,
Verk himnabúa,
Hjálpa til,
Og að lokum fann ég ástina
Og þig,
Þar sem þú hélst í hendi mína,
Þurrkaðir burt tárin,
Þú læknar öll mín sár.

-kristjana