Hversu kjánalegt væri það
ef ég sæti hér í allt kvöld
alein
og biði eftir þér
eða símtali frá þér
en uppgötvaði um síðir
að þú værir aðeins ímyndun unglingsstelpu
uppspuni frá rótum
einungis hugmynd á blaði