rífa þessa grimmd
úr rótum hjartans
þá tortryggni sem heldur
mér fastri,í hlekki liðins tíma.

Óvarlega farið með orð
og orð særa.
Verknaður sem fæst ekki tjáð
fellur á hjörtu
skilur eftir ör.
Grimmd í eðli núsins
hefur hrakið alla burt -
og ég ein -
með grimmdina mér við hlið.