Þetta ljóð samdi ég einhvern tímann þegar ég fann mig ekki alveg í veröldinni. Ég er soldið músíkölsk, þannig að ég notaði samlíkingu við tónlist. Þetta er frekar gamalt ljóð, en samt.


Lífsins tónlist

Hvílíkur hljómgrunnur!
Hlustaðu á huga þinn
stilla strengi hjartans
til að skapa samhljóm
með ímyndaðri veröld
sem á ekki samleið
með raunveruleikanum
og hljómar hjarta þíns
verða falskir,
spilaðir eftir rangri uppskrift.