Lítil fótatök
Ganga litla vegalengd,
Staldra við
Líta framfyrir sig
Sjá víðáttuna,
En ef litið er til baka
Er aðeins þröngur stígur
Sem markar það liðna.

Á vegamótum
Halda þau áfram,
Gefast ei upp,
Berjast fyrir því-
Að það sem liðið er-
Breytist í óendanlegar víðáttur.

-kristjana