Skuggi:
Lúsí! Þú ert helvíti sæt. Helvítis helvíti er þessi hljómsveit.
Súsí, fyrirgefðu. Aldrei í takt þessi ömurlegi ásláttur.
Djöfull hvað þessi í lopapeysunni er bæði leim og ljótur.

Súsí:
Lof sé því. Hvað segirðu svo, sæti strákur?
Skrítið hve skrambans bassaleikarinn er skrækur.
Dæmigert líka að söngvarinn syngur um ímyndaða sælu.

Skuggi:
Leyndu mér engu því J ógeðslega ógeðslegt ógeð.
Staður fyrir töffara og taumlausa trúða.
Drottningin vill að þú takir þetta og látir það tendra á tungunni.

Súsí:
Ljómandi, þetta er afkurat efnið sem mig ofur-vantar.
Skemmtilegt hvernig þessi snefill snýr Snælandi við.
Dreymir mig allt þetta kjaftæði í kringum konGuð?

Skuggi:
Langar þig að vita hvernig konGuð varð að veruleika?
Svo skemmtilega vill til að ég veit vandræði veruleikans.
Demantarnir, hamingjan sanna, handa Lúsí á himnunum.

Súsí:
Leyndarmál sem mig hefur verulega viljað vitað.
Susususs, öhuhg öhuhg öhuggk!
Djísöss sjitt, Ffyrrgefðu. allt Ffór í Ffokk.

Skuggi:
Ládumm eynds og ðað hafi eki skééð…
Seyjum brrrr……
Deyjum………