sveimar símandi
líkt hinum húsflugunum
nokia maður

við lokum á hann
hurðin skilar sér niðrí
undirmeðvitund

teiknar punktlínur
vegg alveg ofan í vegg
fingur í karmi

fjarrænt augnaráð
fylgist með höfðinu þar
sem það gægist út

hangandi yfir
vesturbænum með vangann
litaðan grænan

sitjum lesum úr
mynstri hreyfinganna við-
skila við sig: hann

sitjum hlæjum að
meðan við reykjum hver á
sinn hátt: upp í loft

hún: heimasmíðuð
(kerran sem við drögum í
djöfulinn okkar)

sín hver fótsporin
í leðjunni: niður að
endalokunum

kekkirnir í þeim
(lokunum) - enda stórfelld:
pípanna stíflan

mulningur úr þeim
persónufornöfnunum
liðins núnains

við smíðum bjálkans
húsið, nelgt með þyrnunum
tíndir úr hvörmum

snúist þú í hring
ítrekað og nógu hratt:
einsleitur heimur

kyrr ef þú stoppar -
utan bakvið þig þar er
eitthvað á seyði
-k-