Allt sem þú skapar
allt sem vex og dafnar
eigum við þér að þakka
þér einum - Guð

Öll gleði, öll sorg
öll heimsins fegurð
allar gjafir og gáfur
koma frá þér - Guð

Þú kveiktir lífið
þú vekur vonir og þrár
þú hvetur og styður
þín er dýrðin - Guð

Það sem þú gafst
geturðu tekið
líf sem varð til
geturðu slökkt

Öll heimsins völd og auður
er sem sandur í þínum höndum
allt sem maðurinn byggir
er í þínum höndum