Hvernig gat þeð gerst?
Elsku vinur minn,
Ég hef fallið niður djúpan hyl
Ég hef fallið fyrir þér,
Ég sá það aldrei koma,
Læðst hefur verið að mér aftan frá.
En núna get ég ei hætt,
Hætt að hugsa um þig,
Mitt hjarta þolir ekki meira viðnám.

Svo get ég ekkert sagt,
Ég er varnarlaus,
Get ekki varist,
tilfinningaflóð.
Enn leyni ég þér því,
Að ég sé með bál í hjarta,
-út af þér.

Get ekkert sagt,
Get mig ekki hreyft,
Get ekkert gert.

Ég vona bara að þú skiljir elsku vinur
Við eigum kannski ekki samleið
-hvort í sínu lagi.

En ég get ekkert sagt,
Ég get ekkert gert,
Nema elska þig á laun.

-kristjana