Þetta ljóð er sett saman úr hálfgerðum samtíningu ljóðaforma. Leyfði þessu bara að flæða hrátt út úr mér.


Ofar flýg skýjum
vef mér flos og smakka
kyssi sólina kjassa
hitar mitt hörund

Ofar flýg sólu
dansa plánetur í kring
í nýföllnum snjó
vetrabraut vafinni stjörnum

Ofar flýg veröld
vitund minni og sjálfi
ofar dags flaumi
flýg um í draumi.
—–