Ég veit að það er fyrir bestu.

En hvernig getur eitthvað svo sárt
gert manni gott?

Af hverju líður mér eins og hjartað hafi verið rifið úr mér
þegar ég veit að mér á að vera létt?
Af hverju fyllir sársauki hverja frumu?

Tíminn leikur með mann
dagur verður að viku verður að mánuði verður að ári.

Og hvern dag, viku, mánuð og ár

mun ég sakna þín.