Himinn flöktir mararblár
djúpið svarta neðan
sandur borgir steinar styttur
sætré og sef

sekk ég andlaus huglaus líflaus
vonlaus ferð mín endar
sól skín ei lengur á mig
andlit mitt eða sál
—–