stjörnustráksi

Sofandi sefur strákurinn
hljóðlega svífur hann
Flýgur hann
léttur eins of fugl
svífur hann

Hraður fer hann
Hægir hvergi á
Frelsið fangar hann
Svo fallegt að sjá
Stjörnubjartan himininn

Saklausi stráksi hann
leikur sér við tunglin
Ferlega er hann fær
svo fantalega rjóður
Já sólin finnst hann vera góður
sællega er hann kær

Stjörnufarinn sælur er
Og undarlegur strákur
Alheimurinn andlegur sér
Alheims fákur

Fljótt flýgur tími og hugur
Og fer þá stjörnustráksi að snúa heim
Sællega hann kveður tungl og stjörnur
Og vonar að snúa aftur út í geim

Vaknaðu! Vaknaðu! Strákur
Það er kominn morgunmatur
Flýttu þig nú! og farðu á fætur

Sæli stjörnustrákur vaknar hálf dapur
æææi hvar í nótt var ég aftur?
Minnisglopur? Furðulegur kraftur.

En vonandi fæ ég að sjá sólina aftur!
————————————————