Get ég höfði hallað
í anda hreinum?
Og sýnt minn sanna lit,
leyft þér að standa einum?

Get ég orði ætlað
að bera allt,
allt sem hugsun hylur?

Get ég kaldur kallað
inn krepptan hnefann
fyrr en hræsnin hrynur?

Hvar er svo hugsjónin,
Hugmyndin tær?
Týnd í tærum sjó,
eða talin andlega ær…


Veit ekki, er ósofinn..