góðan daginn,
buenos dias,
bonjur,
guten tag
good morning,
salam,
god dag.

ég heiti Lilja,
og ég er köttur,
en ég er ekki bara
venjulegur köttur.
ég sé ömurleika mannsinns,
í allri sinni mynd,
í gegnum grænar glyrnurnar.

ég hef gaman af tungumálum,
og skemmti mér við lestur,
en ekkiert finnst mér jafn skemmtilegt,
og að horfa á manninn tortíma sjálfum sér,
það er mitt mesta áhugamál,
ég er nefnilega svo illgjörn.

ég er nokkurs konar guð,
ég sit bara og horfi á,
geri ekki rassgat.
en á þessum tíma í lífi mínu
get ég lítið gert,
ég ætla að rísa upp úr öllu veldi,
og drottna yfir ykkur aumum mönnum.

ég er köttur,
ég er stolt
og tígurleg vera,
og af eintómri góðsemi,
hef ég ákveðið
að draga ykkur upp úr svaðinu.

ég sé svo margt hörmulegt gerast,
börn að deyja,
mæður að syrgja,
konum og börnum nauðgað,
en hvað gerir guð?
ekkert.
því ætla ég að klóra úr honum augun
og drepa hann.

þá verður heimurinn betri,
þegar ég,
kötturinn Lilja,
ræð yfif ykkur öllum.
verð ykkar drottning
og gyðja
sem lifif að eilífu.
cecilie darlin