þætti vænt ef viðkomandi sæi sér fært

að sleppa aðeins spottunum
slökkva á skjálftanum
(hætta að ýta á takkann)

breyti í hyski í höfðinu:
tekst það í smástund þangaðtil
hlutaðeigandi málsaðili annarrarpersónu eintölu kvk.

birtist þarna (allir hundraðsjötíuogégmanekki
glansandi sentimetrarnir)

nýtt hár samt sama fólkið
sama flækjan samt nýtt á
-k-