-Víma…-

…blátt fleymið sem liggur latt fyrir ofan höfuð mitt
…reykir mariúana og skilur eftir sig hvít ský
…þau rofna og leka ofan á mig…

…björt sólin svíður dökksvarta augasteinana í höfði mínu
…blindast og ég skjögra sveittur um líflausa borgina
…fell í tárpolla náttúrunnar á köldu malbikinu…

…lít upp til þess eins að horfa á grasstráin dansa í roki
…horfi niður til að sjá sandkornin flýja undan stormi
…en ég stend hérna kyrr til að mæta mínum örlögum…

…þreyttur eftir næturinnar drauma
…latur eftir lífsins löngu göngu
…rifinn sundur milli stríðra strauma
…brotinn í sundur fyrir svo löngu…

…í freistingar frelsi ég lifi glaður
…fíknin er svo góð hérna niðri í hel
…fyrrverandi engill og góður maður
…nú loksins líður mér vel…

…gatan kólnar undan árás tunglsins og sólin flýr senn
…skýin litast svört og gluggar húsanna gráta enn
…líkt og gluggar sálna okkar allra…

…kúlan sem við skríðum á
…jörðin sem við yrkjum
…ástin sem við hörfum frá
…og gleðin sem við kyrkjum…

…börnin að leik í menguðum ám
…kókaín í nösum fyrirmynda
…saklausar sálir horfa nú á klám
…allir hérna á jörðu syndga…

…en eitt lifir að eilífu og það er sú ást sem við finnum
…lífið öðlast tilgang um leið og hún kemur
…sama hvaða leið hún kemur hlaupandi…

…farinn á vit draumanna
…farinn á vit ástarinnar
…ég held þá leið er ég kýs
…meðan tunglið ennþá rís
…tek mitt dóp og drukkna í mér
…því öll mín ást er einmitt hér
…ég þarf ekki að leita lengur
…fundinn er minn ástarfengur
…fundin er mín bjarta skíma
…hérna rétt við hliðina á mér…

…lífið mitt er víma…
…meðan það er við hliðina á þér…

-…Pardus…-
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.