ískalt loftið umlykur
líkama þinn
hreyfingarlausan
ég leggst upp að
reyni að hlýja þér
(hjálpa þér að lifa?)
“taktu mitt”
segi ég
“ég á of mikið”
og sjóðandi blóð mitt
kólnar
lífið fjarar út

þar til við bæði liggjum
ísi lögð

aldrei nóg