Hans myrka slóð
var mörkuð
brostnum hjörtum
barna
er báru traust
og trú til hans
og enn í dag
er áratug má telja
frá dauða
þessa
auðnulausa manns
þá berjast hart
í brjóstum
brostnu hjörtun
og dreyrinn rauði
litar
sporin hans.