Maður býður hálfpartinn enn eftir því að nýliðnir atburðir séu einungis hluti af draumi sem maður vaknar svo af. Fórnarlömbin munu aldrei vakna.




Fellur með hvínandi hraða
nálgast fold nálgast dauði
hraðar
hraðar.

lífið sem ódýr kvikmynd þýtu hjá
eins og lest
loftið kalt hart blautt
dautt.

Fellur
nálgast fold nálgast jörð
kemur í ljós
í hugskoti ljós
sem dofnar skjótt og slökknar brátt.

nálgast fold nálgast dauði
hverfur blámi lífs
saklaus blámi jarðar
svo saklaus.

nálgast fold nálgast endir
hverfull heimurinn
hverfur sakleysið
hverfur líf.
—–