Vindurinn þeytir þurru laufi
í veg fyrir bílana,
menn sitja fyrir utan kaffihús
og njóta veðursins.

Ástfangið par leiðist yfir torgið,
allt er svo miklu betra
í byrjun sumars.

Fíkill situr í skugga
en skelfur þrátt fyrir hitann,
íhugar komandi kvöld.

Fólk keyrir í endalausa hringi,
ætli það sé
að reyna að komast inn í eilífðina?

Þetta er fyrsta ljóðið sem ég set hér inn og vonaxt til þess að fá álit á það fljótlega!