01.04.06.
Rauðar örvar
rjúfa ský
Sýnir stöðvar
skapa á ný.

Reyna rósir
rjóða líf
Laða ljósir
lokkar hlíf.

Yfir yndi
innri hlý
Hennar hendi
heillar á ný.