Stinga hnífar létt mína augasteina
er ég stari mót sólu.
Ég gríp í einn af geislunum
þýt niður Miklubrautina
og stekk af
áður en sólargeislinn stingur sér í tjörnina
og syndir meðal gæsanna.
Ég fer lengra vestur
og horfi á sólina dýfa tánni ofan í kaldan sjóinn
á meðan sólargeislarnir dansa á haffletinum
—–