Ég reyndi mitt besta
en það var ekki nóg
Því þú vilt þann eina rétta

Ég hef skorið út mitt hjarta
Ég vona að þú finnir þann eina rétta
Skilið áttu framtíð bjarta
Það er þín verðskuldaða lokaflétta

Svo skerðu mig út
Ég þoli þetta ekki
Að sjá mína einu þrá
Eitthvað sem ég mun aldrei fá

Ég hef skorið út mitt hjarta
Ég vona að þú finnir þann eina rétta
Skilið áttu framtíð bjarta
Það er þín verðskuldaða lokaflétta

Ég þakka þér fyrir að hafa reynt
Þó ekkert muni fá hjarta þínu breytt
Þú hlýtur að vera orðin svo þreytt
Að hafa þurft að halda þínum sönnu tilfinningum leynt

Ég sleppi takinu
Því að því fær enginn breytt
Ég geri allt
fyrir þig
Því hjarta mitt er þér aðeins falt

Ég hef skorið út mitt hjarta
Ég vona að þú finnir þann eina rétta
Skilið áttu framtíð bjarta
Það er þín verðskuldaða lokaflétta

ég held að þetta sé mín lokakveðja,
sem mig mun að eilífu kvelja.