endurkoma kennileita klofningsdóms
styrkir hann að utan
eflir hann að innan
angrar hann einn, einangrar

hugur sér
samsæri gegn vilja, þeir hylja
sálina þeir mylja
einn

spenntur, hvítt, heftur
engu maður fram teflir
situr, veðurteftur
búið

Hinn hinsti dómur
endirinn á byrjuninni
hann lítur yfir brúnina
stekkur…
Jóhannes Gunnar Þorsteinsson