Óttastu ekki framtíðina,
Sjáðu hana frekar sem mynd
Þar sem þú stendur
Og ég þér við hlið.

Við skulum ekki hræðast
Ókomna tíð,
Því það sem er liðið
Var eitt sinn framtíð.

Óttastu ekki framtíðina
Sjáðu hana frekar sem lind
Þú drepur aldrei niður fæti
Ofan í sama vatnið.

Við skulum ekki hræðast
Ókomna tíð,
Tökum frekar á mótin henni
Eins og byrjun
Á nýjum degi.

-hlinu