Ef þú bara mundir hætta,

hætta að efast,

um hluti sem aðeins

Guð fær breytt

Þá mundir þú jafnskjótt

í hendi þér sjá það

hve sterklega ég þrái,

að vera þér hjá.

Ég vildi að ég gæti

í eyru þér hvíslað

öll þau orð sem ég svo lengi

hef ætlað að segja.

Ef örlögin hefðu ekki

fært okkur saman,

þá veit ég ekki

hvar ég væri staddur,

því án þín er ég ekkert

og því bið ég þig innilega

að fara aldrei mér frá.
-[! Never Under Estimate The Way You Live Your Life !]-