Ég lít niður á hendurnar
Sé ekkert nema örin
Ekkert nema misheppnaðar tilraunir
Til að flýja burt
frá öllum hatri
og öllum mínum ótta

Í höfði mínu hljóma
Fallegar raddir
Sem grátbiðja mig
að vera um kyrrt
En það sem þau sjá ekki
er grafið innst inní mér
mitt brostna hjarta
Mín kalda sál

Ég rétti út hendurnar
Í von um hjálp
En allt sem ég fæ
eru innantóm orð
-[! Never Under Estimate The Way You Live Your Life !]-