Taugaveiklað fólk, allt í kringum mig.
Geðsjúkt fólk , sem hugsar bara um sig.
Hvernig endaði ég hér?
Engan vegin svona ég er!
Skil ekkert upp né niður
Fatta þig ekki, því miður
Lít í kringum mig,
enn eru allir að hugsa um sig.
Hver og einn, einn og einn
Hér inni er enginn hreinn,
á sálinni,
Ég lit til hægri
Einn þar að stinga í sig nálinni
Nú er ég orðin hrædd
Lít til vinstri
Rídalíntaflan, niður brædd
Í þetta er ég ekki game
Held ég drífi mig bara heim,
því ég er sein
Eina manneskjan hér sem á sálinni er hrein
Heyri lítið vein
í æðina, nálin fór ekki bein

Veruleikinn eitt, undirheimar annað
vildi að allt svona væri bannað
vildi að svona fólk ég gæti skammað
en það er ekki hægt.

Alltaf verða einhverjir
Þröngu stígina að fara,
ja, svona af því bara!
Örlög manns eru rituð niður hjá hinu æðra
Örlög tveggja ekki eins,
ekki einusinni góðra bræðra
Vona að þú skiljir hvað ég eigi við
Af lífi þínu þú þarft að taka mið
Gerðu það, þig ég bið.
Hér endar okkar leið
nú leið þín er nokkuð greið
haltu áfram á góðri braut
annars fer þetta allt í graut!
Ég er ég og þú ert þú svo ekki halda að þú þekkir mig!