Þetta ljóð er um hversdagslega atburði í mínu lífi, samið til kærastan míns. Það er ekki eins háfleygt og efnið sem er oftast sent hingað en ég vona að ykkur líki það samt!

Fyrir þig

Ég geri ótal hluti fyrir þig
hluti sem þú tekur ekki eftir
ég hef alltaf tíma fyrir þig
það er engin tilviljun

Ég eyði ótal tímum við spegilinn
tímum sem þú veist ekki um
hárið á mér er alltaf glansandi
heldurðu að það sé tilviljun?

Ég hugsa um þig daglega
vonast til að þú getir hitt mig
og það hlýjar mér um hjartarætur
að þú vitir að minnsta kosti það